|
|
14.04.2008 17:53:29 / tootsy
Jæja...hvernig væri nú að fara að skrifa eikkað hérna inni......reyndar er eina manneskjan sem hefur kvartað yfir því að ég skrifi ekkert er mamma mín!!!  Hversu cool er það??  Það er samt ekkert að gerast hjá mér í augnablikinu sem er þess virði að skrifa um sko! Nema það að það er verið að setja minns í átak.....juminn eini...einu sinni enn.....heldur fólk að það virki eikkað betur núna en áður.......sjáum til bara!!!  Ég á semsagt að missa 5 kíló á 5 vikum og eikkað í fituprósentu og sentimetrum og ég veit ekki hvað og hvað!?!?!?!  Þannig að nú ætla allir að krossa putta fyrir mig og senda góða strauma....og BANNAÐ AÐ BJÓÐA MÉR UPPÁ EIKKAÐ ÓHOLT!!!!!!!  Annars er ekkert meira að frétta í bili......pirrast kannski hérna aftur þegar átakið er farið að ná til mín!!! Adios!
»
07.02.2008 13:23:53 / tootsy
»
10.12.2007 20:25:22 / tootsy
»
06.11.2007 16:24:45 / tootsy
Nú ríkir mikil sorg í Borgargerðinu því kisan okkar hún Trýna hljóp fyrir bíl í gær og þurfti að láta lóga henni. Það vildi svo vel til að ég fór akkúrat heima til mömmu og pabba í hádeginu þennan dag og pabbi líka því hann var að fara til tannsa, annars veit maður ekkert hvað hefði orðið um hana!!! Við pabbi brunuðum með hana uppá dýraspítala og mamma kom svo stuttu seinna til að ath hvort hægt væri að bjarga henni en það voru ekki nógu góðar líkur á að hún mundi ná sér almenninlega þannig að við tókum þá ákvörðun öll saman að láta hana bara fara á betri stað!!! Nú er hún hjá afa mínum á himnum þessi elska.....ég sakna hennar óendanlega mikið og er gjörsamlega búin að vera grátandi síðan þetta gerðist!!! Og ég segi það hérmeð að ég ætla í mestalagi að eiga fiska í framtíðinni, ég höndla ekki að missa annað dýr!!  Nú ætla ég að fara að gráta meira!!! Adios 
»
17.10.2007 20:59:17 / tootsy
Hallóhalló....ætli það sé ekki kominn tími til að skrifa eikkað hérna inni.....veit nú ekki hvort það verði eikkað vit í því en látum reyna á það!!  Ég var að taka til í gamla herberginu mínu um daginn með mömmu og þar fann ég ótrúlegustu hluti.....eins og t.d. gömul bréf frá pennavinum mínum og juminn eini hvað það var fyndið að lesa þetta allt!!! "Í hverjum ertu skotin í? Hvað heitir kennarinn þinn? Eru mikið af sætum strákum í bekknum þínum? Hvað heitir besta vinkona þín?" Ógó fyndið....!!!! En mikið ógurlega á maður nú mikið af drasli sem maður hefur safnað að sér í gegnum árin....og svo hlær maður bara af þessu öllu saman!!!  Á döfinni hjá okkur núna er að reyna að taka íbúðina aðeins í gegn þannig að hægt sé að setja hana á sölu......langar svo að flytja í stærri íbúð sem fyrst.....er orðið soldið þröngt á þingi hjá okkur.....aðalega samt bara aðra hverja helgi!! En ég held að það sé kominn tími á smá breytingu hérna hjá okkur!!! Við erum ekki alveg búin að koma okkur saman um staðsetningu en það kemur örugglega bara þegar við förum að leita almenninlega!! Mig langar náttlega að vera í Bústaðarhverfinu en Jónsi er ekki eins spenntur fyrir því. En svo bara kemur í ljós hvað gerist....ef við finnum geggjaða íbúð sem okkur lýst báðum vel á þá skiptir kannski ekki öllu máli hvar hún er!!!  En jæja....ætla að fara að horfa á ANTM....síja!!!
»
20.09.2007 20:58:40 / tootsy
»
09.09.2007 21:02:21 / tootsy
Jæja gott fólk, ætli það sé ekki kominn tími til að babla eikkað hérna inni......annars verður maður bara skammaður af þessum 2-3 manneskjum sem skoða þetta!!! Ég ætlaði nú að skrifa hérna um Akureyrarferðina en ég bara nenni því ekki, það var geggjað gaman og allt það en það er bara orðið svo langt síðan og ég nenni ekki að rifja hana upp!!!  En ég er ný komin heim frá Spáni maður.....geggjað gaman þar skal ég segja ykkur! Við Jónsi fórum sem sagt með foreldrum mínum til Fuengirola sem er lítill strandbær á Costa del Sol ströndinni. Íbúðin sem við vorum í var mjög fín og ekki skemmdi fyrir að hún var eiginlega bara við strandgötuna!! Fuengirola er fínn staður en það er samt ekki mikið að sjá þar, maður labbaði alltaf sömu 3 göturnar....strandgötuna, verslunargötuna og stóru aðalgötuna, þannig að við skelltum okkur í strætóferðir til nærliggjandi þorpa! Fórum fyrst í lítið fjallaþorp sem heitir Mijas, það er alveg típískt gamalt spænskt þorp með þröngum götum og kríthvítum húsum....rosalega flott sko. Við fórum rúnt í hestvagni sem var rosa gaman og svo var líka hægt að fara ferðir á ösnum en við létum það alveg vera!! Svo fórum við líka til Torremolinos en ég var ekki eins ánægð með þá ferð, mér fannst einhvern vegin ekkert að sjá þar, við löbbuðum eina götu sem lá niður að strönd og svo til baka.....en það var samt gaman að fara þangað!! En í Fuengirola er alltaf markaður á þriðjudögum og það var geggjað að fara þangað, við fórum á hann báða þriðjudagana og við rétt náðum að skoða alla básana í seinna skiptið!!! Svo er líka geggjaður dýragarður þarna í Fuengirola, hann er búinn til þannig að dýrunum finnist þau vera í sínu náttúrulega umhverfi.....engin búr bara náttúra.....rosa flott!!!  Jæja.....búin að skrifa allt sem ég man í augnablikinu....ef eitthvað rifjast upp fyrir mér sem mig langar að deila með ykkur þá bæti ég því við seinna!! Adios for now amigos!! 
»
05.08.2007 20:24:56 / tootsy
Jæja, útilegan
síðustu helgi gekk bara fínt, fengum tjald frá mömmu og pabba
sem er eiginlega bara þriggja manna tjald en við létum okkr
hafa það öll fjögur.....það var soldið þröngt en samt bara
kósí!!! Við fórum af stað á föstudeginum og keyrðum suður
á bóginn........enduðun hjá Seljalandsfossi og tjölduðum þar,
það er ekkert smá fallegt svæði, geggjaður fossinn náttlega
en líka annar sem er eiginlega inn á tjaldsvæðinu, við Dagmar
fundum hann þegar við fórum í lítinn göngutúr um svæðið um
kvöldið, svo ætluðum við að fara þangað aftur daginn eftir og
sýna strákunum hann en þá kom bara svo geggjuð rigning rétt
eftir að við vöknuðum að við borðuðum bara morgunmat í bílnum
og tókum saman tjaldið í flýti og komum okkur í burtu!!!
Við förum bara þangað seinna og skoðum þetta betur! Svo
Keyrðum við í sveitina hans Jónsa og hittum alla ættingjana
þar, þetta var rosa skemmtilegt ættarmót!! Við fengum svo að
tjalda á túninu hjá þeim þannig að við gátum hlaupið inn til
að pissa og svoleiðis!! Svo brunuðum við bara í bæinn á
sunnudeginum, vorum komin heim um miðjan dag og þá tók bara
letin við!!! 
Svo er bara letin líka þessa
helgina, Jónsi að vinna mest alla helgina þannig að það er ekkert
farið......fórum í bíó í gærkvöldi, sáum 1408 og er hún geggjuð
maður....mæli sko alveg með henni.....ógó mikil bregðumynd!!

Svo er ferðinni heitið til
Akureyrar næstu helgi, hlakka geggjað til þess maður, og svo ætla
Jónsi og krakkarnir á Eigilstaði í heimsókn til Kristínar systur
hans, ég fer reyndar með þangað en svo flýg ég heim og þau verða
eftir......ég þarf víst að vinna....fæ ekkert sumarfrí nema bara
rétt þegar við förum til Spánar.... ....sem er nú samt bara
eftir 2 1/2 viku!!!
Jæja, segi ykkur kannski frá
Akureyrar/Egilstaðar ferðinni þegar henni líku!!! Adios amigos!!

»
22.07.2007 17:17:17 / tootsy
Jæja gott fólk,
kominn tími til að babbla smá hérna......fyrstu fréttirnar
eru þær að í gær áttum við Jónsi eins og hálf árs
afmæli.....ótrúlegt en satt sko!!! Þetta gátum við
skötuhjúin.....!!!! Við eyddum deginum í að keyra norður í
Hrútafjörð á ættarmót hjá pabba fjölskyldu. Við vorum í
samfloti með mömmu og pabba og stoppuðum aðeins hjá
fossinum Glanna á leiðinni til að fá okkur kaffi og
með því og það var ekkert smá fallegt þar maður!!!! Svo
héldum við áfram á ættarmótið sem var haldið á æskuheimilinu
hans pabba......eða í sumarbústað sem uppeldissystir hans á
sem er á þeirri jörð!! Þetta var mjög fínt ættarmót, ekkert
fyllerí og bara rólegt!!! Svo rúlluðum við bara heim seint um
kvöldið!! Mjög góður dagur!!! 
Svo erum við að fara á
ættarmót í Jónsa ætt næstu helgi og tökum krakkana með. Við ætlum
bara að gera alvöru ferð úr þessu og fara á föstudeginum og tjalda
einhverstaðar og halda svo áfram á laugardeginum........það er að
segja ef við getum reddað okkur nógu stóru tjaldi!!!

En jæja.....segi ykkur meira
frá því þegar það er búið!!! Adios!
»
02.07.2007 23:09:26 / tootsy
Jæja......Esjan
var klifin í síðustu viku og oh my god maður hvað ég er í
ógeðslega lélegu formi.......ég ætlaði sko að gefast upp
mörgum sinnum á leiðinni....en gerði það ekki, komst alla
leið upp á topp og það ekki auðveldu leiðina sko....við
enduðum einhverstaðar lengst út í rassgati, langt frá stígnum
sem á að fara upp.....hangandi utaná fjallinu!!! Ég mæli
með því að fara eftir göngustígnum þegar farið er upp!!!
Svo var niðurferðin ekki auðveldari sko....maður rann næstu
því alla leiðina.....og sv hrundi maður bara á rassinn þega
maður stóð kjur........ferlega gaman sko!!!! Þessi ferð tók
okkur næstum því 3 tíma.....enda var ég alveg búin á því
þegar ég kom heim!!
Annars er nú ekki mikið að
frétta hér......skruppum aðeins í bíltúr austur um helgina með
krakkana, bara svona dagsferð sko, rosa gaman......svo var bara
farið í sund og ammli og soleiðis....skemmtileg helgi í alla
staði!!! 
Jæja.....hef ekki meira
að segja núna.....adios!! 
»
27.06.2007 19:58:17 / tootsy
Í dag var
fitumæling hjá okkur í vinnunni og hún byrjaði bara vel, ég
búin að missa einhverjar fituprósentur og
sentimetra.......orðin frekar sátt sko.....svo var ég líka
búin að missa næstum því eitt kíló.......og orðin sátt við
þyngdina!!! Svo kom Sif fram og sagði okkur að vigtin vigtaði
ekki rétt því við værum á teppi og hún þurfti því að vigta
okkur aftur.....og þá kom sko skellurinn.......ég var ekki
eins létt og ég hélt.......ég var heilum 6 kílóum þyngri en
ég hélt.......þetta var náttlega ömurlegt.....þannig að ég er
ekki eins sátt við þyngdinaog áður....!!!!! En þetta
er bara svona.....var líka of gott til að vera satt sko!!!!

Svo á morgun ætlum við að
skella okkur á Esjuna......aldrei að vita nema maður fari bara upp
á topp í þetta sinn!!! 
Það er nú ekki mikið annað
búið að gerast hjá mér......jæja nema kanski að ég átti ammli í
gær.....varð 21!!! Borðaði fullt af kökum og
gúmmilaði.......og fékk blóm og pakka......alltaf gaman af því
sko!!! 
En jæja.....ætla að fara að
ryksuga með nýju ryksugunni minni......síja!!! 
»
10.06.2007 20:07:45 / tootsy
»
13.05.2007 20:11:25 / tootsy
»
17.04.2007 17:17:35 / tootsy
Nú er ég
gjörsamlega orðin veik......var að skoða fasteignir á mbl.is
áðan og fann geggjaða íbúð sem mig langar ógó mikið
í........spurning hvað maður getur gert í því núna þar sem ég
býst við því að hún fara fljótt og soleiðis!!!! En mig
langar ógó ógó ógó mikið í hana......spurning um að blikka
kallinn minn og sjá hvað hann segir!?!?!?! Það er náttlega
svo margt sem vinnur með því að við kaupum hana......þá gætum
við verið bara með einn bíl og ég fengið daglega hreyfingu
með því að labba í og úr vinnu.......frekar hagkvæmt
sko.....!!! En við sjáum bara til hvað gerist....kannski
gerist bara ekki neitt....þá fer ég að gráta....en bara í smá
tíma.....það kemur íbúð á eftir þessari íbúð!!!!
En annars er ekki mikið
að frétta hér.......gaman í nýju vinnunni......spurning hvað ég get
lengi kallað þetta nýju vinnuna mína.......allavega aðeins
lengur!!! Svo er sumarið að koma.....eða svo segir dagatalið
allavega....það var sko frost á rúðunni minni í morgun...og soldið
svalt!!! En það er víst sagt að það sé til góðs að vetur og sumar
frjósi saman....þá kemur gott sumar!!!! (krossa putta)

Jæja....ætla að fara
aðvinna aftur....síja!!!
»
30.03.2007 18:15:49 / tootsy
Jæja....ætli það
sé ekki komin tími á að skrifa eikkað hérna inn.....veit að
ég er ekki mjög dugleg í þessu......en ég er að
reyna!!!
Nýja vinnan er æði......gæti
ekki hugsað mér betri vinnu í augnablikinu, tíminn gjörsamlega
flýgur áfram og áður en maður veit af er maður bara búin í
vinnunni!!! Er búin að vera þarna í 2 vikur núna og er bara
orðin vel sjóuð í öllu sem ég á að gera....þó ég segi sjálf frá!!!!
Það er búið að vera brjálað að gera síðustu daga og verður það
áfram eftir helgi en svo fer að róast eikkað eftir páska.......held
ég allavega!!!! 
Svo fór ég aðeins í stutta
heimsókn uppá leikskóla í dag og truflaði matartímann hjá
krökkunum....þau stukku flest öll frá borðinu og knúsuðu
mig.....juminn hvað það var gaman að sjá þau öll....var aðeins
farin að sakna þeirra!!! 
En jæja........ætla að fara
að elda eða eikkað......bæjó!!
»
Síður: 1 2 3 ... 9
|
|